Guðmundur Þórarinsson verður ekki liðsfélagi Hólmars Arnar Eyjólfssonar hjá búlgarska knattspyrnufélaginu Levski Sofia, þrátt fyrir orðróm þess efnis.
Miðjumaðurinn er félagslaus, en hann ákvað að framlengja ekki samning sinn við Norrköping í Svíþjóð eftir síðustu leiktíð.
Var hann orðaður við Levski Sofia en búlgarski miðilinn Novsport greinir frá því í dag að Hólmar muni ekki ganga til liðs við Levski, þar sem félagið samdi frekar við Simeon Slavchev, sem kom til félagsins frá Qarabag.
Guðmundur hefur verið orðaður við félög eins og Heerenveen í Hollandi og Djurgården í Svíþjóð.
Nenhum comentário:
Postar um comentário